Raunfærnimat – hvað er það ?

Býrð þú yfir hæfni sem þú vilt láta meta sem jafngildi náms?

Raunfærnimat er ferli þar sem metin er þekking og færni á ákveðnu sviði svo sem reynsla af starfi, námi eða félagsstörfum. Staðfesting á færni er skjalfest í lok ferilsins og gæti stytt nám í framhaldinu. Með raunfærnimati er hægt að sýna fram á reynslu, færni og þekkingu í starfi og leggja mat á hvernig einstaklingur getur styrkt sig í námi/starfi.

Raunfærnimat með hliðsjón af færnikröfum ákveðinna starfsgreina veitir tækifæri til að fá metna reynslu og færni sem starfssviðið krefst.

Til að komast í raunfærnimat þarf að hafa starfað í viðkomandi grein í a.m.k. 3 ár og hafa náð 23 ára aldri. Náms- og starfsráðgjafi fylgir þátttakendum í gegnum allt ferlið og styður jafnframt við einstaklinginn eftir matið. Þess ber að geta að raunfærnimat er þátttakendum að kostnaðarlausu. 

Ef þú hefur áhuga – hafðu þá samband við Símenntunarmiðstöðina og við athugum hvort raunfærnimat fyrir þig sé í boði á öðrum fræðslumiðstöðvum.

Efst á síðu