Ljóðasamkeppni Símenntunar á Vesturlandi

Símenntun efnir til ljóðasamkeppni í águst og september

Markmiðið er að skapa vettvang fyrir hugleiðingar um fjölmenningu, sjálfsmynd, inngildingu, fordóma, tungumál og það sem tengir fólk saman.

Verðlaun verða veitt fyrir sigurljóðið en samkeppnin er fyrst og fremst hugsuð til að auka vitund, hvetja til samtals og varpa ljósi á ólíka reynslu og sjónarhorn.

Ljóðin mega vera á íslensku eða öðrum tungumálum, en æskilegt er að íslensk þýðing fylgi með ef ljóðið er ekki á íslensku.

Skilafrestur er 15. september 2026 á netfangið jovana@simenntun.is

Með þátttöku samþykkir höfundur að Símenntun megi birta, prenta og nota ljóðið í tengslum við verkefnið, svo sem á sýningu, í kynningarefni, á vefmiðlum eða í prentuðu safni. Höfundar verða ávallt nafngreindir við birtingu ljóðanna. Höfundarréttur að ljóðunum helst hjá höfundum.

Efst á síðu