Leiðbeiningar um styrki

Fjölmörg stéttarfélög bjóða félagsmönnum sínum upp á ýmsa styrki vegna lengra náms og námskeiða.  Margir sjóðir bjóða bæði upp á fyrirtækja- og einstaklingsstyrki.

Reglur starfsmenntasjóðanna eru mismunandi og því nauðsynlegt að atvinnurekendur og launþegar kynni sér þær vel hverju sinni.

Nokkrir stórir starfsmenntasjóðir hafa sameinast um vefgátt sem nefnist Áttin, en þar er hægt að fá mjög gott yfirlit yfir starfsmenntasjóði sem eru bæði innan ASÍ og BSRB. Listinn er þó ekki tæmandi og fjölmargir starfsmenntasjóðir eru ekki hluti af Áttinni.

Hér má nálgast upplýsingar um nokkur stéttarfélög sem starfa á Vesturlandi.

Athugið að þetta er ekki tæmandi listi.

Stéttarfélag Vesturlands

Sæunnargötu 2a, 310 Borgarnes
430 0430  
stettvest@stettvest.is
http://www.stettvest.is

Verkalýðsfélag Akraness

Þjóðbraut 1, 300 Akranes
430 9900
skrifstofa@vfla.is
http://www.vlfa.is

KJÖLUR
stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu

Ráðhústorgi 3, 600 Akureyri, pósthólf: 75
525 8383  
kjolur@kjolur.is
http://www.kjolur.is

Verkalýðsfélag Snæfellinga

Aðalgötu 5, 340 Stykkishólmi
588 1819
verks@verks.is
http://www.verks.is

Grundargata 30, 350 Grundarfirði
588 1991
verks@verks.is
http://www.verks.is

Ólafsbraut 19, 355 Ólafsvík
588 9191
verks@verks.is
http://www.verks.is

Hér má sjá dæmi um starfsmenntasjóði sem veita styrki til náms, en listinn er ekki tæmandi:
Námskeiðsstyrkir fyrir atvinnuleitendur

Ef atvinnuleitandi er með staðfestan bótarétt á hann rétt á styrk frá Vinnumálastofnun vegna atvinnutengdra námskeiða eða styttra náms. Skilyrði fyrir veitingu námsstyrks er að ráðgjafi Vinnumálastofnunar telji að hið starfstengda nám eða námskeið muni nýtast atvinnuleitanda beint við atvinnuleit og auðveldi viðkomandi að fá starf. Styrkurinn getur að hámarki numið 50% af námskeiðsgjaldi en þó aldrei verið hærri en kr. 70.000 á önn eða á hverjum þrettán vikum.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Vinnumálastofnunar Vesturlandi í síma 430 5300 eða á netfangið vesturland@vmst.is

Efst á síðu