Smáskipanám á Snæfellsnesi
Smáskipanám kemur í stað þess sem áður var nefnt 30rl réttindanám (pungapróf) og miðast atvinnuskírteinin nú við lengd skipa í stað brúttórúmlestatölu áður. Réttindin miðast skv. því við skip 12 metrar og styttri að skráningarlengd, m.v. að hafa lokið 12 mánaða siglingatíma skv. reglugerð nr. 393/2008.
Námið er samstarfsverkefni Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi og Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og kennt með faglegri ábyrgð Skipstjórnarskóla Tækniskólans. Hverjum námsþætti lýkur með skriflegu prófi.
Námsmat: Nemendur þurfa að lágmarki 5 í einkunn í stöðugleika og siglingafræði og að lágmarki 6 í siglingareglum til þess að ljúka náminu.
Grunnskólinn í Stykkishólmi
Leiðbeinandi: Magnús Jónsson
Lengd: 115 kennslustundir (40 mínútur)
Kennslutími: Námskeiðið hefst mánudaginn 27, janúar . Kennt verður í 4 lotum, ein vika í senn. Á virkum dögum er reiknað með að kenna kl.17:30 – 21:30 og kl. 9:00 – 13:00 á laugardögum og sunnudögum. Kennslutími verður þó endanlega ákveðinn í samráði við þátttakendur.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Jónsson á netfangið magnusjon@simnet.is eða í síma 892 7139
Verð: 150.000 kr. Innifalið í verði er sjókort, allar námsbækur og próf.