Raunfærnimati er ætlað að meta þá færni og þekkingu sem þú hefur öðlast í star…

Raunfærnimati er ætlað að meta þá færni og þekkingu sem þú hefur öðlast í star...
[ad_1]

Raunfærnimati er ætlað að meta þá færni og þekkingu sem þú hefur öðlast í starfi og frítíma. Það getur mögulega stytt skólagöngu þína.

Við hjá Símenntun erum í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur um raunfærnmat í löggiltum iðngreinum.

Er þetta eitthvað fyrir þig eða veistu um einhvern sem mögulega hefði áhuga? Það sakar ekki að hafa samband við okkur til að fá nánari upplýsingar í síma 437 2390 eða á netfangið vala@simenntun.is

Tadas Augustinaitis fékk nýlega hæstu mögulegu einkunn á sveinspróf í múrsmíði og sérstaka viðurkenningu á Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur fyrir afrekið.

Tadas fór í raunfærnimat hjá IÐUNNI fræðslusetri og fékk þar metna til eininga reynslu sína úr starfi. Að loknu raunfærnimati innritaði hann sig í kvöld- og helgarnám hjá Tækniskólanum og lauk svo sveinsprófi árið 2015 með glæsibrag.

Við óskum Tadas til hamingju með árangurinn.

[ad_2]
Efst á síðu