Kennsla í tæknilæsi
![Niðursokknir nemendur á Akranesi](https://simenntun.is/wp-content/uploads/2022/09/20220919_172217-scaled-1-1200x900.jpg)
Kennsla í tæknilæsi fyrir eldri borgara á Vesturlandi hefur síðustu vikur verið á mikilli siglingu.
Þessar vikurnar eru kennd námskeið á Akranesi og fyrr í haust lauk námskeiði í Búðardal.
Eins voru haldin tvö námskeið í Borgarnesi í ágúst.
Mikil ánægja er meðal þátttakenda og framfarirnar eru miklar. Verkefnið mun standa yfir fram á næsta ár þar sem ætlunin er að kenna alls 14 hópum grunnþætti í tæknilæsi í flestum sveitarfélögum Vesturlands.
Hægt er að fá nánari upplýsingar um fyrirkomulag og þátttöku hjá Ívari Erni Reynissyni
![Niðursokknir nemendur á Akranesi](https://simenntun.is/wp-content/uploads/2022/09/20220919_172217-300x225.jpg)
![Útskrifaðir þátttakendur í Búðardal](https://simenntun.is/wp-content/uploads/2022/09/20220906_185734-300x225.jpg)