Máliþing Telle verkefnið og mikilvæi frumkvöðla- og nýsköpunarstarfs

„Málþing um mikilvægi nýsköpunarstarfs ungs fólks

VESTURLAND: Málþing um TELE verkefnið og mikilvægi frumkvöðla frumkvöðla- og nýsköpunarstarfs verður haldið í Borgarnesi miðvikudaginn 15. júní kl. 10:00 í húsnæði Símenntunarmiðstöðvar Vesturalands að Bjarnarbraut 8. Evrópska Erasmus+ samstarfsverkefnið TELE (Teaching Entrepreneurship – Learning Entrepreneurship) er að stofni til hugsað til að styðja við bakið á ungu fólki. Sumir eru í framhaldsnámi en aðrir hafa hætt framhaldsnámi, glíma við atvinnuleysi eða eiga af öðrum ástæðum erfitt með að fóta sig á vinnumarkaði. Verkefnið snýst um að þetta unga fólk uppgötvi nýjar leiðir til árangurs, þrói frumkvæði og nýti sköpunarkraftinn sem í þeim býr. Fulltrúi Íslands í verkefninu er Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi. Á málþinginu verður frumkvöðla- og nýsköpunarstarfið skoðað frá ýmsum hliðum. Nánari upplýsingar gefur Símenntunarmiðstöð Vesturlands.“

[embeddoc url=“https://simenntun.is/wp-content/uploads/2016/06/160610-1403-TELE_malstofa_A3.pdf“ download=“all“ height=“1250px“ zoom=“50%“]

Efst á síðu