NÝTT: Inngildandi leiðtogafærni

Á þessu námskeiði er fjallað um hvernig leiðtogar geta með markvissum hætti mótað inngildandi teymi sem stuðla að heilbrigðu, árangursríku og sjálfbæru starfsumhverfi. Námskeiðið fjallar á breiðum grundvelli um fjölbreytileika, með sérstakri áherslu á fjölmenningarleg viðfangsefni og áskoranir á vinnumarkaði.
Námskeiðið hentar öllum stjórnendum, fólki í leiðtogahlutverkum og þeim sem vilja efla færni sína í inngildandi forystu.
Verð fyrir stofnanir, fyrirtæki og hópa á Vesturlandi fyrir 2 tíma námskeið er 58.300 kr – athugið að námskeiðið er niðurgreitt af Sóknaráæltun Vesturlands. Verð fyrir stofnanir, fyrirtæki og hópa sem eru ekki staðsett á Vesturlandi fyrir 2 tíma námskeið er 116.600 kr.
Að námskeiði loknu munu þátttakendur öðlast:
- Skilning á áhrifum og árangri: Innsýn á því hvernig samskipti og teymisvinna hafa bein áhrif á árangur skipulagsheilda, ásamt því hvað einkennir inngildandi teymi.
- Kerfislægan skilning: Aukna getu til að greina þá lykilþætti sem móta upplifun starfsfólks, samskipti á vinnustað og virkni innan teyma.
- Færni í mótun vinnustaðamenningar: Hagnýt verkfæri og aðferðir til að skapa, þróa og viðhalda inngildandi menningu innan teyma.
- Umbætur: Hagnýtar aðferðir til að meta og bæta ferla á öllum stigum starfsferilsins, allt frá ráðningu og móttöku nýrra starfsmanna til starfsþróunar og áframhaldandi þátttöku, með inngildingu að leiðarljósi.
- Færni í fjölmenningarlegri forystu: Sérstök áhersla á þau einstöku viðfangsefni og tækifæri sem fylgja því að samþætta erlent starfsfólk inn á vinnumarkaðinn. Þessi nálgun veitir þátttakendum innsýn sem nýtist við að leiða fjölbreytt teymi með árangursríkum hætti
- Dagar
- Fyrirspurn: jovana@simenntun.is/4372394
- Verð
- 116.600 kr.