Morgunkaffi á TEAMS: Kynþátta- og menningarfordómar á vinnustaðnum

Kynþátta- og menningarfordómar á vinnustaðnum

Samkvæmt rannsóknum eru kynþátta- og menningarfordómar á vinnustaðnum ein algengasta vinnutengda mismununin sem tilkynnt er. Þrátt fyrir fjölbreyttar tilraunir víða um heim til þess að sporna gegn slíkum fordómum á vinnustöðum er vandinn enn útbreiddur. Það veldur áhyggjum vegna þeirra alvarlegu afleiðinga sem slík mismunun getur haft.

Kynþátta- og menningarfordómar á vinnustaðnum geta verið einstaklingsbundnir auk þess sem þeir geta verið stofnana- og kerfisbundnir. Þeir geta bæði verið beinir (augljósir) og óbeinir (lúmskir) og þeir hafa fjölmargar birtingarmyndir. Í erindinu verður fjallað um hvernig kynþátta- og menningarfordóma birtast á vinnustaðnum og hvaða afleiðingar þeir geta haft fyrir einstaklinga sem og vinnustaðinn.

Erindið byggir að hluta til á rannsókn á kynþátta- og menningarfordómum og birtingarmyndum þeirra innan stofnana Reykjavíkurborgar sem Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð Reykjavíkurborgar ákvað árið 2022 að gera og var unnin af Reykjavíkurborg í samstarfi við Semu Erlu Serdaroglu, aðjúnkt á Menntavísindasvið Háskóla Íslands og lauk nýlega.

Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á reynslu starfsmanna borgarinnar af fordómum til að auka þekkingu á birtingarmyndum þeirra, tíðni og umfangi með það að markmiði að bæta aðstæður og vellíðan á vinnustaðnum. Úttektin leiddi í ljós að finna má fordómafull viðhorf og hegðun, útilokandi starfshætti og vinnustaðamenningu sem umber fordóma og mismunun innan stofnana Reykjavíkurborgar.

Fyrirlesari er Sema Erla Serdaroglu, aðjúkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Fyrirlesturinn verður á TEAMS og er opinn öllum. Morgunkaffi á TEAMS er hluti af Fjölmenningarskóla Vesturlands.
Til að skrá þig smelltu á skráningarlínkinn í hægra horninu eða sentu tölvupóst á jovana@simenntun.is
Kennslutímabil
14. október 2026
Dagar
Miðvikudag
Tími
09:00—10:10
Efst á síðu