NÝTT! Jólakransar í Stykkishólmi

Markmið námskeiðsins er að kenna aðferð við að vefja jólakrans. Námskeiðið er verklegt og þátttakendur munu allir vefja sinn eigin jólakrans sem þeir taka með sér heim í lok kvöldsins. Allt sem til þarf í kransagerð er innifalið í námskeiðsgjaldi ásamt léttum veitingum.
Leiðbeinandi námskeiðsins er Edda Baldursdóttir eigandi Blómakranzar skreytingarþjónustu.
Námskeiðið er haldið í Freyjulundi Aðalgötu 24 a Stykkishólmi.
Tvær dagsetningar eru í boði
- 30. nóvember kl. 18-21.
- 1. desember kl. 18-21.
- Námskeiðið hefst þegar næg þátttaka næst.
- Kjölur býður sínum félagsmönnum námskeiðið að kostnaðarlausu.
- Athugið niðurgreiðslu hjá ykkar stéttarfélagi.
Nánari upplýsingar
simenntun@simenntun.is/437-2390.
- Verð
- 21.900 kr.