Morgunkaffi á TEAMS: Kynþátta- og menningarfordómar á vinnustaðnum

Samkvæmt rannsóknum eru kynþátta- og menningarfordómar á vinnustaðnum ein algengasta vinnutengda mismununin sem tilkynnt er. Þrátt fyrir fjölbreyttar tilraunir víða um heim til þess að sporna gegn slíkum fordómum á vinnustöðum er vandinn enn útbreiddur. Það veldur áhyggjum vegna þeirra alvarlegu afleiðinga sem slík mismunun getur haft.
Erindið byggir að hluta til á rannsókn á kynþátta- og menningarfordómum og birtingarmyndum þeirra innan stofnana Reykjavíkurborgar sem Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð Reykjavíkurborgar ákvað árið 2022 að gera og var unnin af Reykjavíkurborg í samstarfi við Semu Erlu Serdaroglu, aðjúnkt á Menntavísindasvið Háskóla Íslands og lauk nýlega.
Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á reynslu starfsmanna borgarinnar af fordómum til að auka þekkingu á birtingarmyndum þeirra, tíðni og umfangi með það að markmiði að bæta aðstæður og vellíðan á vinnustaðnum. Úttektin leiddi í ljós að finna má fordómafull viðhorf og hegðun, útilokandi starfshætti og vinnustaðamenningu sem umber fordóma og mismunun innan stofnana Reykjavíkurborgar.
Fyrirlesturinn verður á TEAMS og er opinn öllum og er styrktur af Fjölmenningarskóla Vesturlands.
Til að skrá þig smelltu á skráningarlínkinn í hægra horninu eða sentu tölvupóst á jovana@simenntun.is
- Kennslutímabil
- 14. október 2026
- Dagar
- Miðvikudag
- Tími
- 09:00—10:10