Haust 2026 – NÝTT: Leikskólaliða – stuðningsfulltrúabrú

Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú
Viltu efla þig í starfi og opna leið að frekara námi? Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú er sérsniðið nám fyrir fólk með reynslu af störfum með börnum og ungmennum.

Inntökuskilyrði:

  • Umsækjendur skulu hafa náð 23 ára aldri.
  • Umsækjendur skulu hafa að lágmarki þriggja ára starfsreynslu í störfum sem tengjast leikskóla-, stuðnings- eða umönnunarstörfum.
  • Umsækjendur skulu hafa lokið um 200–240 klukkustundum af starfstengdum eða fagtengdum námskeiðum.
  • Umsækjendur þurfa að búa yfir þeirri hæfni sem þarf til að takast á við alla hluta námsins.
  • Þau sem hafa lokið raunfærnimati eru hvött til þess að sækja um og fá starfsréttindi
  • Inntökuskilyrðin eru í samræmi við námskrá Borgarholtsskóli
Þetta er frábært tækifæri fyrir leikskólaliða og stuðningsfulltrúa sem vilja fá reynslu sína metna, styrkja faglega stöðu sína og skapa sér ný tækifæri á vinnumarkaði.

Nánari upplýsingar: vala@simenntun.is/437-2391

 

 

Efst á síðu