Ráðstefna á Spáni

Í síðustu viku sótti verkefnastjórinn okkar Logan International Technology, Education and Development ráðstefnu í Valencia á Spáni. Um það bil 700 kennarar rannsakendur og frumkvöðlar alls staðar frá til að skoða og læra um nýjustu þróun í menntun og námstækni. Í ár var sérstök áhersla á vaxandi hlutverk gervigreindar í nútímasamfélagi.




Logan kom til baka með nýja innsýn, hagnýt verkfæri og verðmæt tengsl sem munu hjálpa okkur að samþætta og nýta gervigreind betur í verkefnastjórnun okkar. Við hlökkum til að skoða hvernig þetta getur skapað ný tækifæri til að styðja við nám nemenda okkar og hjálpað þeim að fá sem mest út úr þjónustunni sem við bjóðum.