Á döfinni: Prjónanámskeið til að bæta íslenskukunnáttu

Viltu prjóna og um leið hjálpa fólki að bæta íslenskukunnáttu sína.
Símenntun á Vesturlandi vill hefja prjónanámskeið fyrir fólk af erlendum uppruna í Borgarnesi og á Akranesi. Markmiðið er að námskeiðið sameini handavinnu og íslenskunám í notalegu og félagslegu umhverfi.
Við leitum nú að einstaklingum sem hafa áhuga á að leiðbeina þátttakendum í prjóni og um leið spjalla á íslensku. Ekki er krafist kennslureynslu — mikilvægast er áhugi, þolinmæði og vilji til að eiga samtal.
Umsóknarfrestur um leiðbeinendastöðu á prjónanámskeiðinu okkar er liðinn og viðtöl standa nú yfir.