Símenntun á Vesturlandi býður upp á raunfærnimat fyrir félagsliða.
Matið er ætlað þeim sem hafa náð 23 ára aldri og hafa starfað í greininni í a.m.k. þrjú ár.
Fræðslusjóður greiðir fyrir þátttakendur sem hafa ekki lokið formlegri menntun.
Félagsliðanám er fyrir alla þá sem vinna við ummönnun. Starfsvettvangurinn er á félags-, heilbrigðis- og menntasviði við að aðstoða einstaklinga sem þurfa á sérhæfðri aðstoð að halda við athafnir daglegs lífs og styðja þá til sjálfshjálpar. Menntunin miðast annað hvort við umönnun aldraðra eða fatlaðra.
Upplýsingar um námsbrautina á heild má finna á vef namskra.is
Með raunfærnimati er verið að meta þekkingu sem þegar er til staðar í viðeigandi námsleið óháð því hvaðan hún kemur. Með því styttist námstíminn í samræmi við það sem þegar er lært.
Raunfærnimat er aldrei nóg eitt og sér til að öðlast réttindi en að loknu matinu fá þátttakendur leðibeiningar um hvernig hægt er að ljúka námi í greinni.
Nám í félagsliða er sérhæft starfsmenntanám sem endar með útskrift á þriðja hæfniþrepi.
Nánari upplýsingar um félagsliðanám má til dæmis nálgast á vef Borgarholtsskóla og Menntaskólanns á Egilstöðum