Búfræði

Símenntun á Vesturlandi býður upp á raunfærnimat í búfræði í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands.

Matið er ætlað þeim sem hafa náð 23 ára aldri og hafa starfað í greininni í a.m.k. þrjú ár. 
Fræðslusjóður greiðir fyrir þátttakendur sem hafa ekki lokið formlegri menntun.

Búfræðinám er ætlað fyrir alla sem koma að landbúnaði með einum eða öðrum hætti. Markmiðið er að auka hæfni einstaklings til búreksturs og alhliða landbúnaðarstarfa.

Þeir hæfniþættir sem þjálfaðir eru í náminu og geta verið metnir í raunfærnimati eru meðal annars:

  • Þekking á fóðrun dýra
  • Hirðing og meðferð dýra
  • Notkun og umhirða landbúnaðartækja og véla
  • Þekking á þörfum landbúnaðarinns
  • Þekking á ræktun og nýtingu plantna til fóðuröflunar og beitar
  • Þekking á ræktun og kynbótum búfjár
  • Þekking á lögum og reglum sem snúa að landbúnaðarframleiðslu
  • Meðvitund um nýtingu auðlinda með sjálfbærni og afurðir að leiðarljósi

Upplýsingar um námsbrautina í heild má finna á namskra.is

Af hverju raunfærnimat?

Með raunfærnimati er verið að meta þekkingu sem þegar er til staðar í viðeigandi námsleið óháð því hvaðan hún kemur. Með því styttist námstíminn í samræmi við það sem þegar er lært.
Raunfærnimat er aldrei nóg eitt og sér til að öðlast réttindi en að loknu matinu fá þátttakendur leðibeiningar um hvernig hægt er að ljúka námi í greinni.

Að loknu námi:

Nám á búfræðibraut er sérhæft starfsmenntanám með námslok á þriðja hæfniþrepi.
Námið er góður undirbúningur til framhaldsnáms á sviði almennra náttúruvísinda, búvísinda og dýralækninga.

Nánari upplýsingar um nám í búfræði má nálgast á vef LBHÍ

Hafðu samband: simenntun@simenntun.is


Efst á síðu