Þjónusta við innflytjendur
Náms- og starfsráðgjöf býðst einnig fólki af erlendum uppruna og hefur Símenntun á Vesturlandi sérhæft sig í fjölmenningarlegri ráðgjöf.
Náms- og starfsráðgjafar veita meðal annars aðstoð við eftirfarandi:
- Gefa upplýsingar um tækifæri til menntunar, atvinnu og starfsþróunar
- Aðstoða við ákvarðanatöku um menntun og atvinnuval
- Hjálpa við að yfirstíga námshindranir
- Veita einstaklingsráðgjöf eða hópleiðsögn um menntun og atvinnu
- Veita ráðgjöf vegna persónulegra mála
- Hjálpa til við færnikortlagningu, ferilskrárgerð og starfsumsóknir
- Styðja og hvetja til símenntunar
Viðfangsefni með einstaklingum eru til dæmis:
- Sjálfsmat (áhugasvið, mat á færni, styrkleikar og veikleikar, reynsla og hæfni)
- Færnimappa og ferilskrá
- Námstækni og skipulag
- Markmiðasetning
- Lesblindugreining
- Að finna ný tækifæri (menntun, námsstyrki, atvinnu)
Nánari upplýsingar veita náms- og starfsráðgjafar Símenntunar á Vesturlandi.