Sumardagskrá Símenntunar, Öldunnar og Búsetuþjónustunnar í Borgarbyggð
Í júlí síðastliðnum var ákveðið að brydda upp á nýjungum í samstarfi Öldunnar, Búsetuþjónustu fatlaðra og Símenntunar á Vesturlandi.
Ákveðið var að bjóða upp á nokkurs konar sumarnámskeið, sem samanstóðu af rólegri hreyfingu, ferðalögum og heimsóknum á áhugaverða staði. Farið var í þrjár dagsferðir, á Akranes, Snæfellsnes og í Dalabyggð.
Ýmsir áhugaverðir staðir voru heimsóttir, t.d. í vitann og Guðlaugu á Akranesi, á Erpsstaði og Vínlandssetrið í Dölunum og í Vatnshelli og Djúpalónssand á Snæfellsnesi.
Mikil gleði var með ferðirnar en umsjón og undirbúningur var í höndum Eiríks Þórs Theodórssonar ásamt starfsfólki frá Öldunni og Búsetuþjónustunni.