Íslenska 1 á Akranesi

Símenntun á Vesturlandi býður upp á námskeiðið Íslenska 1 á næstunni:

  • Kennt á mánudögum og miðvikudögum kl 18:30 til 21:30
  • Í húsnæði Starfsendurhæfingar Suðurgötu 57 – Akranesi
  • Hefst 12. október 2022
  • Lýkur 28. nóvember 2022
  • Verð: 47.500kr

Íslenska 1 er námskeið ætlað fullorðnum aðilum sem eru að byrja að læra íslensku sem annað tungumál.

Nemendur læra íslenska stafrófið, grunn í málfræði, framburð og daglegan orðaforða sem er kenndur með einföldum samtölum og verkefnum. Mikil áhersla er lögð á talþjálfun.

Umsóknir fara fram rafrænt á: Umsóknarvefur (inna.is)

Nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Vala Elísdóttir náms- og starfsráðgjafi í síma 863 9124 eða vala@simenntun.is

Efst á síðu