NÝTT: Val, notkun og viðhald keðjusagar – inngangur í trjáfellingar 

Námskeiðið er hugsað sem inngangur að notkun keðjusagar. Það hentar vel fyrir fólk sem hefur litla sem enga reynslu af trjáfellingum en langar að fræðast um örugga notkun og rétt vinnubrögð. 

Í fræðilegum hluta námskeiðsins verður farið yfir grundvallaratriði um val á réttri sög, hvaða búnað þarf til að viðhalda söginni, tryggja öryggi við fellingar og hvernig best er að þjónusta og hirða sögina. 

Í verklega hlutanum verður farið yfir einfalda trjáfellingartækni og sýnt hvernig best er að ganga frá greinum og bol eftir fellingu. Kennsla fer fram sem sýnikennsla og taka þátttakendur ekki virkan þátt í verklegum æfingum. 

Kennari leggur til allan búnað og efni sem notað er í námskeiðinu. Þátttakendur þurfa því ekki að koma með eigin keðjusög eða annan búnað. 

Aldurstakmörk þátttakenda eru 16 ár. 

Sérstök áhersla er lögð á öryggi og rétta umgengni við keðjusög. 

Kennari Pavle Estrajher 

Kennt laugardaginn 12.september kl. 10-15 með hádegishléi. 

Staðsetning: Símenntun á Vesturlandi, Bjarnarbraut 8 Borgarnesi 

Athugið niðurgreiðslu hjá stéttarfélögum.
Nánari upplýsingar: vala@simenntun.is 

Kennslutímabil
12. september 2026—12. september 2026
Dagar
Laugardagur
Tími
10:00—15:00
Efst á síðu