Morgunkaffi á TEAMS: Sálfelagslegar hindranir kvenna af erlendum uppruna

ENGLISH BELOW!
Sálfélagslegar hindranir kvenna af erlendum uppruna: Hvernig getum við stutt betur?
Þetta erindi veitir inngang að þeim sálfélagslegu hindrunum sem konur af erlendum uppruna mæta við að fóta sig í íslensku samfélagi og fjallar um hvernig árangursríkur stuðningur og úrræði geta stuðlað að jafnari vinnumarkaði og samfélagi.
Í erindinu verður skoðað hvernig kyn og uppruni fléttast saman og móta reynslu kvenna, bæði hvað varðar aðgengi þeirra að tækifærum og hvernig þær eru skynjaðar og hvernig komið er fram við þær. Sérstök áhersla verður lögð á áhrif þessara þátta á heilsu og þær áskoranir sem geta komið fram í tungumálanámi, á vinnumarkaði og við þátttöku í samfélaginu almennt.
Einnig verður fjallað um hvers vegna sum vel meint úrræði, sem miða að því að styrkja getu kvenna til að takast á við þessar hindranir – til dæmis með áherslu á að efla sjálfstraust eða færni í streitustjórnun – geta reynst ófullnægjandi þegar undirliggjandi áskoranir eru kerfislægar fremur en einstaklingsbundnar.
Að lokum verður kynnt önnur nálgun til að skilja og takast á við þessar áskoranir. Sú nálgun tekur mið af samspili einstaklingsbundinnar reynslu og samfélagslegra og kerfislægra aðstæðna og miðar að stuðningi sem er árangursríkari, réttlátari og byggir á meiri skilningi og umhyggju fyrir raunverulegri reynslu kvenna af erlendum uppruna á Íslandi.
Logan Lee Sigurðsson er verkefnastjóri og náms- og starfsráðgjafi innflytjenda hjá Símenntun. Í erindinu byggir hún á reynslu sinni af Mállíðan-verkefninu, sem fjallaði um sálfélagslega þætti í tungumálanámi, og AMARA-skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar um aðgengi kvenna af erlendum uppruna að norrænum vinnumarkaði, en hún höfundaði íslenska hluta skýrslunnar. Starfsreynsla hennar spannar bæði fyrirtækja- og félagasamtök, með áherslu á mannauðsmál, réttindi innflytjenda og málefni tengd inngildingu.
Fyrirlesturinn verður á TEAMS og er opinn öllum. Morgunkaffi á TEAMS er hluti af Fjölmenningarskóla Vesturlands.
Til að skrá þig smelltu á skráningarlínkinn í hægra horninu eða sentu tölvupóst á jovana@simenntun.is
- Kennslutímabil
- 18. nóvember 2026—18. nóvember 2026
- Dagar
- Athugið að fyrirlesturinn verður á ensku!
- Tími
- 09:00—10:10