Morgunkaffi á TEAMS: Kynjafræði og fjölmenning

Drepið á inntaki í kynjafræði sem námsgrein á framhaldsskólastigi. Morgunkaffið kemur inná helstu efnisþætti og aðeins um aðferðir sem eru óhefðbundnar. Rætt verður um áskoranir sem ólikir nemendahópar og kennarar mæta í kennslustundum. Farið yfir ákveðnar ranghugmyndir og fordóma sem fagið og greinin mætir frá almenningi, stjórnmálafólki, foreldrum og nemendum. Ekki síst verður árangur kynjafræðinnar reifaður 😊

Áhorfendur/hlustendur eru hvattir til að spyrja og taka þátt í samtalinu.

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir er kynjafræðikennari í Borgarholtsskóla og hefur um árabil hvatt og unnið að því að innleiða kynja- og jafnréttisfræðslu á öll skólastig – þ.m.t í kennaranámi. Hanna sat í 10 ár í jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands og beitti sér m.a. á þeim vettvangi.

Fyrirlesturinn verður á TEAMS og er opinn öllum og er styrktur af Fjölmenningarskóla Vesturlands.

Til að skrá þig smelltu á skráningarlínkinn í hægra horninu eða sentu tölvupóst á jovana@simenntun.is

Kennslutímabil
30. september 2026
Dagar
Miðvikudagur
Efst á síðu