NÝTT: Upplýsingatækni

Í áfanganum öðlast nemendur hagnýta færni í notkun Microsoft 365, með áherslu á Word, Excel og PowerPoint. Nemendur læra að nýta stafræn kerfi, vinna saman að skjölum og vista og deila gögnum í skýinu.
Nemendur kynnast jafnframt gervigreind, helstu hugtökum hennar og notkunar í námi, daglegu lífi og atvinnulífi. Áhersla er lögð á ábyrga og gagnrýna notkun gervigreindar, meðal annars með tilliti til siðferðis og persónuverndar.
Einnig er fjallað um ábyrga netnotkun, netöryggi, höfundarrétt, persónuvernd og samskipti á netinu. Nemendur eru hvattir til að beita gagnrýninni hugsun og móta sér meðvitaða afstöðu til eigin stafrænnar hegðunar.
Skráning og nánari upplýsingar: vala@simenntun.is/437-2390
- Kennslutímabil
- 2. september 2026—9. desember 2026
- Dagar
- Kennt verður á mikðvikudögum á TEAMS í fjarkennslu kl. 19:30-21:00 nema fyrsta kennsla sem fer fram 2. september þá verður kennt kl. 17:30-20:00
- Tími
- 19:30—21:00