Um okkur

Símenntun er ein níu símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni, en hún er sjálfseignarstofnun og var stofnuð 19. febrúar 1999. Stofnaðilar að Símenntunarmiðstöðinni eru 34 talsins, sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir á svæðinu.

Starfsemi Símenntunar tekur mið af framhaldsfræðslulögum, en þau tóku gildi 1. október 2010.

Símenntun er með þjónustusamning við Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og er á fjárlögum.  Símenntun fær árlega framlag til að standa straum að hluta launakostnaðar og rekstri húsnæðis, en Símenntun rekur tvær starfsstöðvar á Vesturlandi.

Markmið með starfsemi Símenntunar er að efla og styrkja íslenskt atvinnulíf og samfélag með endur- og símenntun sem tekur mið af þörfum atvinnulífs og einstaklinga. Sérstaklega skal stofnunin huga að þörfum íbúa á Vesturlandi í þessu sambandi.

Hlutverk Símenntunar er að auka þekkingu og stuðla að bættum búsetuskilyrðum á Vesturlandi með því að greina og svara menntunarþörf og hvetja til símenntunar í samvinnu við atvinnulíf og íbúa svæðisins. Símenntun er miðja þróunar og miðlunar þekkingar fullorðinna á svæðinu og fyrsti kostur íbúa og atvinnulífs í öflun hennar.

Símenntun tengir saman þá sem vinna að miðlun og öflun þekkingar fullorðinna á svæðinu og stendur fyrir ýmsu námsframboði í fullorðinsfræðslu, auk náms- og starfsráðgjafar og ráðgjafar og greiningar á fræðsluþörf innan fyrirtækja og stofnana. Símenntun þjónustar einnig fjarnema í háskólanámi, svo þeir geti tekið próf í heimabyggð.

Símenntun á aðild að Leikn, samtökum fullorðinsfræðsluaðila á Íslandi og Símennt, samtökum fræðslu- og símenntunarmiðstöðva

Símenntun er stofnaðili að Starfsendurhæfingu Vesturlands og Gleipni nýsköpunar- og þróunarsetri á Vesturlandi.


HAFÐU SAMBAND

Efst á síðu