Ársfundur Símenntunar

Ársfundur Símenntunar fór fram miðvikudaginn 25. mars þar sem farið var yfir starfsemi liðins árs. Á fundinum komu saman stjórn, starfsfólk og aðrir hagsmunaaðilar þar sem framkvæmdastjóri Símenntunar á Vesturlandi, Guðrún Vala Elísdóttir fór yfir helstu verkefni ársins 2025, sagði frá starfseminni og kynnti nýtt starfsfólk þau Jerzy Wlosowicz  og Logan Lee Sigurðsson sem hófu störf nú í ársbyrjun. Hún fór jafnframt yfir ársreikning 2025 sem var samþykktur samhljóma. Símenntun stendur vel fjárhagslega og verkefnin eru mörg og fjölbreytt.

Þá var gengið til stjórnarkjörs en kosið er til tveggja ára í senn og nú var kosið um í fulltrúa atvinnulífs, stéttarfélaga og sveitarfélaga.  Ný í stjórn er Sigríður Erna Guðmannsdóttir fyrir Verkalýðsfélag Snæfellinga en stjórn er að öðru leyti óbreytt. Að lokum þakkaði framkvæmdastjóri stjórn og starfsfólki fyrir gott samstarf. Fundarstjóri var Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri Grundarfjarðar. 

Guðrún Vala Elísdóttir, framkvæmdastjóri Símenntunar á Vesturlandi

Efst á síðu