Eva Karen Þórðardóttir ráðin í starf verkefnastjóra
Eva Karen Þórðardóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra hjá Símenntunarmiðstöðinni en hún var valin úr hópi fimmtán umsækjenda.
Eva Karen hefur starfað sem grunnskólakennari, gegnt starfi gæða- og mannauðsstjóra hjá Grillhúsinu, rekið dansskóla, unnið að mörgum verkefnum er snúa að “Fræðslustjóra að láni” innan framleiðslu- og ferðaþjónustufyrirtækja og starfað m.a. með Hæfnisetri ferðaþjónustunnar og Starfsafli.
Eva Karen lauk prófi frá KÍ 2005, lauk mastersgráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst 2016 og lýkur MBA námi frá HR næsta vor.
Eva Karen kemur til starfa í byrjun næsta árs. Um leið og við bjóðum Evu Karen velkomna til starfa þökkum við umsækjendum fyrir sýndan áhuga á starfinu og óskum þeim alls hins besta.