Lokið: Tölvunámskeið í Borgarnesi

Kennd verða fyrstu skrefin á hvers kyns tölvubúnað og snjalltæki, svo sem fartölvur, spjaldtölvur, ipad, iphone og android síma.

Farið verður í ýmsa notkun tækjanna, svo sem samfélagsmiðla, netkaup, leit, smáforrit og ýmis þægileg forrit sem geta hjálpað þátttakendum  í daglegu lífi. Eins verður fjallað um þær hættur sem netsvindl hefur í för með sér og aðferðir til að bregðast við því. Loks geta þátttakendur stungið upp á því sem þeir vilja sjálfir læra, svo sem skipulag í tölvunni, yfirfærsla ljósmynda á milli tækja og slíkt.

Alls 8 klukkustundir.

Kennt er í kennslustofu Símenntunar að
Bjarnarbraut 8.

Kennari: Ívar Örn Reynisson.

Skráning: ivar@simenntun.is.
Í skráningu þarf að koma fram kennitala og símanúmer.

Athugið rétt til niðurgreiðslna hjá stéttarfélagi.

Athugið að félagsmenn í stéttarfélögunum Kjölur og Sameyki sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu.

 

Kennslutímabil
23. apríl 2024—7. maí 2024
Dagar
Mánudagar og miðvikudagar
Tími
17:00—19:00
Verð
16.000 kr.
Efst á síðu