Lokið: Tölvunámskeið í Borgarnesi
Kennd verða fyrstu skrefin á hvers kyns tölvubúnað og snjalltæki, svo sem fartölvur, spjaldtölvur, ipad, iphone og android síma.
Farið verður í ýmsa notkun tækjanna, svo sem samfélagsmiðla, netkaup, leit, smáforrit og ýmis þægileg forrit sem geta hjálpað þátttakendum í daglegu lífi. Eins verður fjallað um þær hættur sem netsvindl hefur í för með sér og aðferðir til að bregðast við því. Loks geta þátttakendur stungið upp á því sem þeir vilja sjálfir læra, svo sem skipulag í tölvunni, yfirfærsla ljósmynda á milli tækja og slíkt.
Alls 8 klukkustundir.
Kennt er í kennslustofu Símenntunar að
Bjarnarbraut 8.
Kennari: Ívar Örn Reynisson.
Skráning: ivar@simenntun.is.
Í skráningu þarf að koma fram kennitala og símanúmer.
Athugið rétt til niðurgreiðslna hjá stéttarfélagi.
Athugið að félagsmenn í stéttarfélögunum Kjölur og Sameyki sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu.
- Kennslutímabil
- 23. apríl 2024—7. maí 2024
- Dagar
- Mánudagar og miðvikudagar
- Tími
- 17:00—19:00
- Verð
- 16.000 kr.