Morgunkaffi á Teams: Staðalmyndir og kynþáttafordómar

Hvernig mótum við skoðanir okkar á Hinum? Hver hefur vald til þess að skapa þekkingu? Hvers vegna lifa ákveðnar staðalmyndir áfram þrátt fyrir að þær séu skaðlegar? Hvað eru kynþáttafordómar?

Í þessari fræðslu skoðum við  birtingarmyndir og áhrif staðalmynda og kynþáttafordóma í nútímanum,  og hvernig þessir þættir viðhalda og endurskapa valdakerfi.

Fyrirlesari er Jovana Pavlovic mannfræðingur og fjölmenningarfulltrúi Símenntunar á Vesturlandi.

Skráning fer fram á jovana@simenntun.is eða í síma 437-2394

Kennslutímabil
20. nóvember 2025
Dagar
Fimmtudagur
Tími
09:00—10:10
Efst á síðu