Haust 2024: Fagnám í umönnun fatlaðra

Námskráin Fagnám í umönnun fatlaðra lýsir námi á 2. þrepi sem skiptist í 12 námsþætti. Markmið námsins er að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni.

Í náminu er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi fatlaðs fólks með því að veita þeim viðeigandi þjónustu. Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra en í því felst að vinna við þjónustu á heimilum og stofnunum fyrir fatlaða. Það getur einnig hentað þeim sem starfa í þjónustu við aldraða og sjúka og fyrir þá sem vinna með börnum og unglingum í vanda.

Breyttar áherslur í starfi kalla á aukna fagmennsku og markvissa starfsþróun þannig að starfsfólk geti veitt framsækna og metnaðarfulla þjónustu.

Námið spannar 324 klukkustundir. Mögulegt er að meta námið til 16 eininga á framhaldsskólastigi.

Nánari upplýsingar veitir Ívar Örn Reynisson verkefnastjóri á netfanginu ivar@simenntun.is eða í síma 437 – 2396

Efst á síðu