Á döfinni: Prjónað á íslensku

ENGLISH BELOW!
Prjónað á íslensku – tungumálanám í notalegu umhverfi 🧶
Viltu æfa þig í íslensku á meðan að þú prjónar? Þetta námskeið sameinar íslenskunám, handverk og félagslega samveru.
Á námskeiðinu hittist hópur þátttakenda einu sinni í viku og prjónar saman á meðan íslenskan er æfð í samtali. Markmiðið er að byggja upp sjálfstraust í tali, auka orðaforða og skapa öruggt rými til að tala íslensku.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er ætlað fullorðnum sem vilja æfa íslensku í óformlegu umhverfi. Þátttakendur geta verið á mismunandi stigi í íslensku, þar sem áherslan er á tal og hlustun frekar en skrifleg verkefni.
Það er einnig opið öllum sem hafa áhuga á prjóni – hvort sem þú ert byrjandi eða með meiri reynslu. Kennari veitir prjónastuðning eftir þörfum samhliða tungumálanáminu.
Hvernig fer kennslan fram?
Kennslan byggir á samtali, reynslu þátttakenda og sameiginlegu áhugamáli. Hver tími hefst á léttu samtali og nýjum orðaforða sem tengist daglegu lífi eða prjónaskap. Síðan taka við para- eða hópæfingar þar sem þátttakendur æfa sig í að tala íslensku. Þessi aðferð skapar rólegt andrúmsloft þar sem tungumálið fær að þróast í gegnum samveru frekar en formleg próf eða verkefni.
Hvað lærir þú?
Á námskeiðinu æfir þú meðal annars:
- að kynna þig og tala um sjálfan þig
- orðaforða tengdan prjóni og handverki
- samtöl um daglegt líf, vinnu og áhugamál
- hvernig á að biðja um hjálp eða útskýra eitthvað
- orðaforða um veður, árstíðir og fatnað
- að segja stuttar sögur og deila reynslu
Á sama tíma vinnur þú að eigin prjónaverkefni og færð leiðbeiningar eftir þörfum.
Skipulag námskeiðs
- Lengd: 8 vikur
- Tími: 2 klst. á miðvikudögum (20 kennslustundir alls). Tveir aukadagar bætast við samkvæmt samkomulagi við þátttakendur.
- Fjöldi þátttakenda: 10–12 manns
- Verð: 31.500 kr. Athugið niðurgreiðslu hjá stéttarfélögum.
- Efni: Þátttakendur koma með eigið garn og prjóna
Í lok námskeiðs er lögð stutt könnun fyrir þátttakendur þar sem þeir geta sagt frá reynslu sinni og hvernig námskeiðið studdi við íslenskunám þeirra.
🧶 Komdu og prjónaðu þig inn í íslenskuna.
- Kennslutímabil
- 8. apríl 2026—27. maí 2026
- Dagar
- Miðvikudagar; Wednesdays
- Tími
- 18:00—20:00
- Verð
- 31.500 kr.