Á döfinni: Námskeið fyrir starfsfólk eldhúsa og mötuneyta

Símenntun á Vesturlandi heldur með leiðbeinendum frá Sýni, námskeið fyrir starfsfólk mötuneyta og eldhúsa sem kemur að meðhöndlun matvæla. Áhersla er lögð á hagnýt ráð og aukinn skilning á örverufræði og réttri meðhöndlun matvæla. Eftir námskeiðið eiga þátttakendur að vera betur meðvitaðir um helstu hættur við meðferð matvæla og hvernig eigi að fyrirbyggja þær.

Námskeiðið verður haldið í húsnæði Símenntunar í Borgarnesi að Bjarnabraut 8 kl. 9 -12.

Nánari upplýsingar veitir Hekla Gunnarsdóttir í síma 437-2393 eða í netfanginu hekla@simenntun.is

Kennslutímabil
19. febrúar 2025
Dagar
Miðvikudagur
Tími
09:00—12:00
Efst á síðu