Á döfinni – Morgunkaffi á TEAMS: Samskipti lögreglu og minnihlutahópa

Neikvæð samfélagsumræða, fordómar og traust: Samskipti lögreglu og minnihlutahópa
Í síðasta morgunkaffi annarinnar verður fjallað um samband lögreglu og minnihlutahópa, sem hefur lengi verið mikilvægt rannsóknarefni. Rannsóknir sýna að minnihlutahópar, til dæmis innflytjendur, verða oftar fyrir afskiptum lögreglu, bera almennt minna traust til hennar og leita síður til hennar eftir aðstoð. Traust er þó lykilforsenda þess að borgarar veiti lögreglu upplýsingar og samstarf, sem er grundvöllur árangurs í löggæslu.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvernig vaxandi neikvæð samfélagsumræða um minnihlutahópa getur haft áhrif á viðhorf, traust og samskipti milli lögreglu og minnihlutahópa. Einnig verður rætt hvers vegna traust allra hópa samfélagsins er mikilvægt fyrir samfélagslegt öryggi og hvað lögreglan getur sjálf gert til að byggja upp og viðhalda því í breyttu samfélagi.
Fyrirlesari er Eyrún Eyþórsdóttir, lektor á námsbraut í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri.
Fyrirlesturinn er opinn öllum er styrktur af Fjölmenningarskóla Vesturlands.
Nánari upplýsingar: jovana@simenntun.is
- Kennslutímabil
- 16. apríl 2026
- Dagar
- Fimmtudagur
- Tími
- 09:00—10:10