Á döfinni – Morgunkaffi: Hvað gerir jafnréttisstofa?

Hvað gerir Jafnréttisstofa?

Í fyrirlestrinum verður veitt innsýn í hlutverk og verkefni Jafnréttisstofu. Fjallað verður um hvernig stofan styður við jafnréttismál á Íslandi, meðal annars með ráðgjöf, fræðslu og upplýsingagjöf. Sérstök áhersla verður lögð á réttindi fólks af erlendum uppruna og þá fræðslu og stuðning sem Jafnréttisstofa veitir þessum hópi.

Fyrirlesari: Anna Lilja Björnsdóttir, sérfræðingur á Jafnréttisstofu

Fyrirlesturinn verður á TEAMS og er opinn öllum og er styrktur af Fjölmenningarskóla Vesturlands.

Til að skrá þig smelltu á skráningarlínkinn í hægra horninu eða sentu tölvupóst á jovana@simenntun.is

Kennslutímabil
12. mars 2026
Tími
09:00—10:10
Efst á síðu