Námskeið og námsbrautir
Símenntunarmiðstöðin býður upp á fjölbreytt úrval lengri námsbrauta sem eru bæði starfstengdar og almenns eðlis. Þessar námsbrautir eru fjármagnaðar af Fræðslusjóði framhaldsfræðslunnar og eru ætlaðar þeim sem hafa ekki lokið formlegu námi í skólakerfinu.
Námsbrautirnar eru skipulagðar, bæði í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir, en einnig eru einhverjar námsbrautir auglýstar sérstaklega. Það fer allt eftir eftirspurn og fjármagni hverju sinni.
Námsbrautirnar má meta til eininga í formlega skólakerfinu.
Hér má sjá yfirlit yfir námsbrautirnar:
Símenntunarmiðstöðin býður einnig upp á sérsniðin námskeið eftir óskum og eftirspurn. Námskeiðin eru af ýmsum toga, s.s. tölvunámskeið, þjónustunámskeið, heilsutengd námskeið, skyndihjálparnámskeið, tungumálanámskeið svo eitthvað sé nefnt.